Já ég er búin að fá það nokkurn veginn staðfest að ég er að fara að útskrifast 23. maí nk. og ég get ekki beðið :D Fer 18.maí til að fá einkunnirnar mínar og ég ætla rétt að vona að þessi 2 auðveldu fög mín hafi séð til þess að ég klári menntaskólann með stóru brosi í andlitinu! Ooohh ég hlakka svo til að fara að stússast, fer að fara í það að hringja út og bjóða fólki í veislu sem verður heima, og byrja að undirbúa matinn og taka til og gera mig sæta og og og.. :) En svo tekur bara vinnan við frammá haust og þá hef ég ákveðið að skella mér í sálfræðina í HÍ, þ.e. allavega sækja um og sjá svo til hvort ég komst inn eður ei. Ég hlakka ekkert lítið til að fara að gera e-ð nýtt og skemmtilegt, hugsa svo að ég reyni að fá að halda áfram að vinna hjá símanum um helgar, eða bara eins og ég treysti mér til. Jáh það var nú það.. ég er alveg í öngum mínum yfir þessari blessuðu Eurovision keppni sem fór fram um helgina.. djöfuls rugl er þetta orðið. Ég er samt alfarið á móti því að hætta.. það gengur ekkert að gefast upp, lýst betur á að breyta bara leikreglunum örlítið.. eins og t.d. skipta undankeppninni í 2 hluta, austur og vestur Evrópu þannig að jafn mörg lönd komist áfram í aðal keppnina frá hvorum hlutanum. Já mín hugmynd á að vera fyrir valinu ;)
En ég er búin að vinna í dag og ætla að drífa mig og vera sæt við mömmu og pabba og gefa þeim blóm því þau eiga 19 ára brúðkaupsafmæli í dag.. Til hamingju með það :D
Ef þú situr við hlið einhvers í flugvél eða lest sem fer í taugarnar á þér gerir þú eftirfarandi: 1. Taktu fram tölvutöskuna þína hljóðlega og settu hana fyrir framan þig.
2. Taktu upp ferðatölvuna þína.
3. Kveiktu á tölvunni.
4. Fullvissaðu þig um að manneskjan sem pirrar þig sjái skýrt og greinilega á tölvuskjáinn.
5. Lokaðu augunum og líttu upp til himins, mumlandi eitthvað óskiljanlegt í hljóði.
Það er ekkert að frétta og ég hef ekkert að segja!
Jújú, það er komið páskafrí :) Ég er að vinna í dag og á morgun og svo er vikufrí og komin í frí í skólanum.. yndislegt :) Ég ætla að gera svo margt skemmtilegt.. ætla í fullt af búðum og klára að kaupa föt fyrir útskrift (er búin að kaupa júniformkjól og á eftir að kaupa skó), ég ætla að slappa af og fara í sund og hanga heima á náttfötunum og horfa á barnó, ætla kannski að kíkja í bústaðinn með andra, ég ætla á fedde le grand á broadway, ætla að djamma fullt, fer í skírn á sunnudaginn,m fermingu á fimmtudaginn.... váá páskarnir alveg fullbókaðir :) veivei En ég tek samt fagnandi öllum boðum um félagsskap því stelpurnar verða allar fyrir vestan um páskana nema ég :(
Jæja komin tími á að láta vita af sér. Ég skellti mér semsagt til Köben um daginn.. það var algjört æði! Mig langaði mest af öllu að flytja bara strax út, hefði örugglega gert það ef það væri ekki fyrir andra og vinkonurnar :) En þessi ferð var alveg fullkomin, við byrjuðum á að kynnast fullt af skemmtilegum krökkum á leiðinni út sem við svo hittum úti og djömmuðum með.. skelltum okkur meira að segja á þorrablót íslendingafélagsins þarna úti :) Svo var verslað daginn út og inn og skór eyðilagðir vegna mikils labbs (vil ekki viðurkenna að það hafi verið útaf öllu fokking slabbinu) en það var samt alveg þess virði þó veðrið hafi kannski ekki verið upp á sitt besta. Það var ýmislegt skemmtilegt sem gerðist... ég og Dagný vorum m.a. spurðar af miðaldra karlmanni í morgunverðarhlaðborðinu hvort við værum ekta (útskýring: við erum svo fallegar), svo benti hann á andlitin okkar! Svo var káfað feitt á mér þegar ég var í sakleysi mínu á leiðinni út úr Danmörku! Það semsagt byrjaði að pípa á mig í hliðinu og ég þurfti að gjöra svo vel að hoppa upp á pall sem sneri að ÖLLUM sem voru að labba í gegn og standa með útglenntar lappir meðan e-r kall káfaði á mér með spítu!!!! Takk fyrir pent!!!
Anyways, þetta var samt rosalega skemmtilegt og ég er örugglega að gleyma fullt af hlutum sem ég ætlaði að setja inn.. en þeir koma þá bara seinna :) En það er árshátíð hjá símanum á laugardaginn í laugardalshöllinni, já laugardalshöllinni og það verður flottur matur og vín og Todmobil að spila.. fjör fjör :)
Myspace er æði!!!! Ég var nýlega að gera mér grein fyrir því hvers vegna svona margir eru hooked á myspace.... það er nottlega bara ógeðslega gaman að vesenast í því :) Ég er með síðuna www.myspace.com/heida .. já ótrúlegt að ég skuli hafa náð nafninu heida :) náði því ekki einu sinni þegar ég byrjaði að blogga hér.
En ég og Dagný erum á leiðinni til Köben (hef nokkrum sinnum talað um það hérna) ;) förum eftir tæplega 2 sólarhringa :D Ég get hreinlega ekki beðið. Hef sjaldan verið svona spennt fyrir utanlandsferð, nema nottlega fyrir Costa.. Ég ætla að eyða svo miklu og kaupa mér svo ógeðslega mikið af fötum að það er vandræðalegt, og auðvitað djamma líka ógeðslega mikið og ekki má gleyma því að ég ætla líka að reyna að njóta lífsins pínulítið! Ég er búin að vera að reyna að rifja upp dönskuna, sem er dáldið pínlegt því ég kann svona mest lítið af henni en reddast það ekki alltaf.. hún rifjast strax upp fyrir manni :)
Jæja, ég er að vinna og það er miklu skemmtilegra að vesenast á myspace í vinnunni ;)
Very næs, já þær eru allar mjög líkar mér, aha.. semsagt Hillary Duff (næstum eins og systur) ;) ,Mandy Moore, Adriana Karembeu, Kristen Bell (Veronica Mars gellan), Charlize Theron, Delta Goodrem og fleiri.. Gaman að þessu :)
Jæja, þá er Dagný sæta systir mín loksins orðin 17 ára og þá styttist sko í bílprófið :D Það er eitthvað sem ég get ekki beðið eftir vegna þess að ég á svo feitt inni hjá henni skutl.. þannig hún verður í skutlinu ,,allar" helgar næstu árin ;) veiveivei En já til hamingju með afmælið í gær sæta mín :* Læt eina mynd af stóru stelpunni fylgja með :)